Brim gefur starfsfólki sínu hlutabréf

Deila:

Stjórn Brims hefur ákveðið að afhenda fastráðnu starfsfólki félagsins og dótturfélaga hluti í Brimi í samræmi við starfsaldur hjá félaginu. Styrkur félagsins felst í öflugu starfsfólki til sjós og lands. Stjórnin þakkar fyrir vel unnin störf í þágu félagsins og þá sérstaklega síðustu tvö ár í heimsfaraldri Covid og þeim einstöku áskorunum sem við höfum staðið frammi fyrir. Á slíkum tímum verður seint undirstrikað mikilvægi starfsfólks í velferð og árangri félagsins til framtíðar. Áætlað er að þetta séu um 6 milljónir hluta og heildarkostnaður Brims er áætlaður um 650 milljónir króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Brimi um rekstrarafkomu félagsins á síðasta ári.

Auknar rekstrartekjur
Rekstrartekjur Brims hf. árið 2021 námu 387,9 m€ samanborið við 292,4 m€ árið áður. Hækkun rekstrartekna má bæði rekja til loðnuveiða sem og hærri veltu í botnfiskvinnslu.

Aðrar tekjur námu 20,9 m€ sem eru söluhagnaður vegna aflaheimilda að fjárhæð 17,8 m€  og söluhagnaður rekstrarfjármuna að fjárhæð 3,1 m m€. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 93,2 m€ eða 24,0% af rekstrartekjum, en var 57,4 m€ eða 19,6% árið áður. Fjármagnsgjöld voru 3,6 m€ samanborið við 6,8 m€ árið áður. Lækkun fjármagnsgjalda skýrist bæði af hækkun vaxtatekna og lækkun gengismunar.

Áhrif hlutdeildarfélaga voru jákvæð um 0,8 m€ sem er sama fjárhæð og árið áður. Hagnaður fyrir tekjuskatt var 94,7 m€, samanborið 36,4 m€ árið áður. Gjaldfærður tekjuskattur nam 19,5 m€, en var 7,5 m€ árið áður. Hagnaður ársins varð því 75,2 m€ en var 29,4 m€ árið áður.

Meðalfjöldi ársverka árið 2021 var 762 en var 769 árið 2020. Laun og launatengd gjöld námu samtals 78,5 m€, samanborið við 66,9 m€ árið áður (11,8 milljarðar króna á meðalgengi ársins samanborið við 10,3 milljarða árið áður).

Efnahagur

Heildareignir félagsins námu 795,9 m€ árslok 2021. Þar af voru fastafjármunir 627,5 m€ og veltufjármunir 168,4 m€. Fjárhagsstaða félagins er sterk og nam eigið fé 398,4 m€ og var eiginfjárhlutfall 50,0%, en var 44,1% í lok árs 2020. Heildarskuldir félagsins í árslok 2021 voru 397,5 m€.

Sjóðstreymi

Handbært fé frá rekstri nam 82,5 m€ árið 2021, en var 43,1 m€ árið áður.  Fjárfestingarhreyfingar voru jákvæðar um 24,5 m€. Fjármögnunarhreyfingar voru neikvæðar um 51,8 m€. Handbært fé hækkaði því um 55,3 m€ á tímabilinu og var í árslok 76,9 m€.

Meginniðurstöður færðar til íslenskra króna

Séu niðurstöður rekstrarreiknings reiknaðar til íslenskra króna á meðalgengi ársins 2021 (1 evra = 150,19 ísk) voru tekjur 58,3 milljarður króna, EBITDA 14,0 milljarðar og hagnaður 11,3 milljarðar. Séu niðurstöður efnahagsreiknings reiknaðar til íslenskra króna á lokagengi ársins 2021 (1 evra = 147,6 ísk) voru eignir samtals 117,5 milljarðar króna, skuldir 58,7 milljarðar og eigið fé 58,8 milljarðar.

Covid-19

Áhrif veirufaraldursins Covid-19 á rekstur samstæðunnar hafa verið nokkur á árinu.  Stjórnendur og starfsmenn samstæðunnar hafa markvisst unnið að því að bregðast við áhættum í rekstrarumhverfi vegna Covid-19 veirufaraldursins og afleiðingum hans.

Neikvæðra áhrifa heimsfaraldurs gætti enn á ferskfiskmörkuðum á fyrri hluta ársins þar sem ferðalög fólks voru í lágmarki, mötuneyti víða lokuð og starfsemi veitingahúsa takmörkuð.  Eftirspurn tók við sér um mitt ár samhliða auknum bólusetningum og frjálsræði borgara á helstu mörkuðum og verðþróun var hagstæð fyrir helstu afurðir.  Flutningar hafa gengið vel fyrir ferskar afurðir en kostnaður við flutninga hefur almennt hækkað.

Áhrif veirufaraldursins á rekstur Brims á næstu mánuðum ræðst eðilega af þróun heimsfaraldursins. Stjórnendur samstæðunnar fylgjast náið með þróun mála á helstu mörkuðum en samstæðan er vel í stakk búin til að takast á við breyttar aðstæður, en ekki er hægt að segja til um það hversu mikil áhrif faraldurinn og óvissu í heimsmálum hefur á rekstur og efnahag til framtíðar. Samstæðan er fjárhagslega sterk og hefur gott aðgengi að lánsfjármagni.

Hærra verð á sjávarafurðum

„Styrkur Brims kom vel í ljós á síðasta ári.  Starfsfólk Brims sýndi þrautseigju og elju annað árið í röð í erfiðu árferði vegna Covid heimsfaraldrar.  Það veiddist vel, framleiðsla gekk vel sem og sala á afurðum á erlendum mörkuðum. Miklar fjárfestingar félagsins undanfarinna ára í hátæknivinnslubúnaði, veiðiheimildum og nýjum skipum eru einnig að skila sér með sýnilegum hætti í bættum rekstri og afkomu Brims. Fjárfesting í sölufyrirtækjum á síðustu misserum hefur haft jákvæð áhrif á afurðaverð þeirra vara sem seldar eru á erlenda markaði sem skilar sér í hærri verðum og aukinni arðsemi í rekstri félagsins alls.

Þegar við skoðum síðasta ársfjórðung ársins 2021 sérstaklega sjáum við að EBITDA hagnaður tvöfaldast frá sama tímabili árið áður, úr 13,7 milljónum evra í 27,7 milljónir. Ástæðan er aukin veiði á síld og loðnu og hærra verð á sjávarafurðum. Annað sem vekur athygli á fjórðungnum er sala félagsins á 5,84% aflahlutdeild í loðnu. Þrátt fyrir bókfærðan söluhagnað upp á tæpar  18 milljónir evra var það stjórnendum þvert um geð að selja aflahlutdeildina. Í kjölfar óvenjumikillar úthlutunar á veiðiheimildum á loðnu og þess að þorskígildisstuðull loðnu fór úr 0,00 í 0,36 fóru heildar þorskígildi félagsins upp fyrir 12% þorskígildishámark og varð félagið því að selja frá sér aflaheimildir sem það hafði alla burði og getu til að veiða og vinna.

Þegar horft er um öxl sést að á árinu 2021 hélt Brim áfram að vaxa og styrkjast. Heildareignir félagsins jukust og nema núna nærri 796 milljónum evra. Fjárhagsstaðan er góð þar sem eigið fé er 398 milljónir evra. Eiginfjárhlutfall er 50% í samanburði við 44% ári áður. Það má því segja að Brim sé hraust og burðugt félag.  Brim keppir um hylli viðskiptavina á fjarlægum mörkuðum við fjölþjóðakeppinauta sem eru margfalt stærri og þess vegna þarf félagið  að vera fjárhagslega sterkt, lipurt og standa á eigin fótum til að geta brugðist rétt við nýjum og breyttum aðstæðum á hverjum tíma. Að mínu mati er Brim þannig fyrirtæki í dag,” segir Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims

Aðalfundur

Aðalfundur Brims hf. verður haldinn fimmtudaginn 24. mars 2022 klukkan 17:00. Nánari upplýsingar verða veittar á heimasíðu félagsins www.brim.is.

Deila: