Lollur

Deila:

Eftirfarandi uppskrift er að finna á heimasíðu Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Hún er hluti af herferð fyrir aukinni fiskneyslu undir yfirskriftinni Fiskur í matinn. Þetta er einfaldur og þægilegur réttur og að sjálfsögðu hollur. Nafnið „lollur“ er myndað úr sambandi af laxi og bollum. Uppskriftin er fyrir tvo.

Innihald:

Laxabollur

200 g laxafars
1 egg
1 sítróna (börkur)
9 g graslaukur smátt skorinn 
6 g steinselja smátt skorin
45 g skalottlaukur smátt skorinn

Tzatziki sósa

125 g jógúrt
90 g agúrka kjarnahreinsuð og smátt skorin
40 g tahini
2 hvítlauksgeirar rifnir
5 g mynta smátt skorin

Aðferðin:

Blandið saman laxafarsi, eggi, skalottlauk, sítrónuberki, graslauk og steinselju og kryddið eftir smekk. Myndið laxabollur með tveimur skeiðum og setjið á disk. Blandið hráefnum að tzatziki sósu í skál og saltið eftir smekk. Hitið pönnu vel með olíu og steikið laxabollurnar á öllum hliðum í 2-3 mínútur. Kryddið með salti.

Berið fram með tzatziki sósu, steinselju og sítrónusafa.

Deila: