Ný Cleopatra 40 til gildruveiða á humri afgreidd til Skotlands

Deila:

Bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði afgreiddi núna nýverið nýjan Cleopatra bát til Burnmouth á austurströnd Skotlands. Að útgerðinni stendur John Affleck sjómaður frá Burnmouth sem jafnframt er skipstjóri á bátnum.

Nýi báturinn hefur hlotið nafnið Soph-Ash-Jay-3.  Báturinn er 15 brúttótonn.  Soph-Ash-Jay-3 er af gerðinni Cleopatra 40.  Báturinn er fjórði báturinn sem Trefjar afhenda útgerðinni.

Einn af eldri bátum útgerðarinnar Cleopatra 40 sem útgerðin fékk afhentan 2017 verður áfram í rekstri.  Nýi báturinn mun leysa af hólmi eldri Cleopatra 38 bát frá 2008.

Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT C13 650 hp tengd ZF 325IV gír.

Báturinn er útbúinn 17 kW rafstöð af gerðinni Scam/Kubota.  Siglingatæki koma frá Simrad.  Báturinn er með uppsettar Olex og MaxSEA skipstjórnartölvur.

Hann einnig útbúin með vökvadrifnum skut og bógskrúfum sem tengd er sjálfstýringu bátsins.  Í bátnum er andvelti gýrókúla.

Báturinn er útbúinn til gildruveiða á humri og töskukrabba.  Reiknað er með að báturinn muni draga 1000 gildrur á dag.

Í fiskilest bátsins er sjálfvirkt sjóúðunarkerfi til að halda humri lifandi um borð.  Með þessu fyrirkomulagi fæst mun meira aflaverðmæti.

Öryggisbúnaður bátsins er frá Viking.

Rými er fyrir 17 stk 380 lítra kör í lest.  Í vistarverum er, svefnpláss fyrir þrjá til fjóra auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.

Að sögn útgerðarinnar mun báturinn verða gerður út frá Burnmouth allt árið, báturinn hefur þegar hafið veiðar.

 

Deila: