Meira unnið til manneldis
Fiskiðjuver Síldarvinnslunnar í Neskaupstað framleiddi samtals 39.216 tonn af afurðum á árinu 2016 en heildarframleiðsla á árinu 2015 nam 30.860 tonnum. Í fiskiðjuverinu er öll áhersla lögð á vinnslu á uppsjávarfiski og er sífellt meira af uppsjávarafla unnið til manneldis. Þá hafa afköst fiskiðjuversins verið aukin. Í fiskiðjuverinu er einungis unnin bolfiskur (ufsi og karfi) þegar hlé er á vinnslu uppsjávartegunda.
Í töflunni hér á eftir sést skipting framleiðslunnar á milli tegunda á árunum 2016 og 2015:
2016 | 2015 | |
Makríll | 16.484 | 11.264 |
Loðna | 10.691 | 9.110 |
Loðnuhrogn | 1.906 | 1.875 |
Síld | 10.135 | 9.519 |
Bolfiskur | 392 | 29 |