Ný 11metra Cleopatra 36B afgreidd til Tromsø

Deila:

Útgerðarfélagið West Atlantic AS í Tromsø í Noregi fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 36B beitningavélarbát frá Bátasmmiðjunni Trefjum ehf í Hafnarfirði. Báturinn er systur skip TRANØY sem útgerðin fékk afhentan í upphafi árs 2016.

Að útgerðinni stendur Bjarni Sigurðsson.  Íslendingur sem verið hefur búsettur í Noregi í áratugi. Nýi báturinn hefur hlotið nafnið Aksel B.  Báturinn mælist 18 brúttótonn. Aksel B er af nýrri gerð Cleopatra 36B sem er sérhönnuð inn í undir 11 metra veiðikerfið í Noregi.

Aðalvél bátsins er af gerðinni Scania D13 550hö tengd ZF500IV gír. Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni JRC og Simrad.

Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins. Báturinn er útbúinn til línuveiða með beitningarvél. Beitningavélarkerfi og línuspil er frá Mustad og annar búnaður til línuveiða frá Stálorku ehf. Blóðgunarkerfi er umborð og sjókælir frá Kælingu ehf.

Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

Rými er fyrir 12 660 lítra og 4 460 lítra kör eða 29 460 lítra kör í lest.  Í bátnum er upphituð stakkageymsla með aðstöðu fyrir 4 skipverja. Sæti fyrir áhöfn í brú.  Svefnpláss er fyrir fjóra í tveimur aðskildum klefum. Salerni og sturtuaðstaða í lúkar ásamt fullbúinni eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofni og ísskáp.

 

Deila: