Polar Amaroq með loðnu

Deila:

Grænlenska skipið Polar Amaroq hélt til loðnuveiða og -rannsókna á þriðjudagskvöld, en um borð í skipinu eru rannsóknamenn frá Hafrannsóknastofnun. Heimasíða Síldarvinnslunnar sló á þráðinn um hádegið í dag og spurði frétta. Bæði var rætt við Geir Zoёga skipstjóra og Guðmund Hallsson stýrimann.

Þegar rætt var við þá félaga var skipið statt um 54 mílur norðnorðaustur af Langanesi á hefðbundinni loðnuslóð. Fram kom hjá þeim að í gær hefðu þeir orðið varir við töluvert af loðnu á þessum slóðum og kom það nokkuð á óvart ef tekið er tillit til þeirra mælinga sem áður hafa farið fram. Nokkuð erfitt hafi verið að meta magn en tekin voru tvö hol í gærkvöldi og nótt og fengust þá 350-400 tonn af stórri og fallegri loðnu og reyndist hrognafyllingin vera á bilinu 10-11%. Fyrra holið var mjög stutt en hið síðara um fjórir tímar. Vel gengur að frysta loðnuna um borð í Polar Amaroq en skipið getur fryst hátt í 200 tonn á sólarhring.

Gert er ráð fyrir að rannsóknaskip frá Hafrannsóknastofnun haldi til loðnuleitar á morgun en að sögn þeirra Polar-manna er veður heldur leiðinlegt á leitarsvæðinu um þessar mundir. Þá er von á norskum og færeyskum skipum á næstunni og þá fjölgar þeim sem svipast um eftir loðnunni.

Geir Zoёga sagði að menn hresstust alltaf þegar fyrsta loðnan kæmi um borð. „Maður verður glaður og bjartsýnn þegar loðnulyktin finnst og við höfum heyrt að skip hafi orðið vör við loðnu víðar fyrir norðan land. Vonandi verður loðnuvertíðin miklu betri en gert hefur verið ráð fyrir,“ sagði Geir að lokum.
 

Deila: