Mast skoðar eldiskví Arctic Sea

Deila:

Á laugardaginn, 18. febrúar, fór eftirlitsmaður Matvælastofnunar að starfsstöð Arctic Sea Farm við Haukadalsbót í Dýrafirði en fyrirtækið hafði áður tilkynnt um gat á kví til Fiskistofu og Matvælastofnunar. Enn er óljóst hvenær og hvernig gatið myndaðist en líklegasta skýringin er sú að botnhringur og net hafi nuddast saman með þeim afleiðingum að núningsgat myndaðist á efri hluta þrengingar við botn kvíarinnar. Netið hefur verið lagfært og verður gatið stærðarmælt þegar kvíin verður tekin á land en áætluð stærð gatsins er um 80cm x 50cm. Fyrirtækið hefur látið kafara yfirfara aðrar kvíar og búnaðinum verður öllum skipt út á þessu ári.

Starfsmenn fyrirtækisins höfðu í samráði við Fiskistofu lagt net við kvína og í eftirlitsferðinni á laugardaginn voru þau dregin um borð í vinnubát fyrirtækisins og færð til samkvæmt tilmælum eftirlitsmanns Fiskistofu. Enginn regnbogasilungur var í netinu og ákveður Fiskistofa næstu skref er varða eftirlitsveiðar á svæðinu. Ekki er hægt að áætla hversu margir fiskar hafa sloppið fyrr en starfsmenn fyrirtækisins hafa lokið við slátrun úr kvínni en áætlað er að það verði nú í lok febrúar eða í byrjun mars. Um er að ræða geldan og sjúkdómalausan regnbogasilung sem er ekki fær um að fjölga sér í íslenskri náttúru.

Í tilkynningu Arctic Sea Farm til fjölmiðla kom fram að töluverður fjöldi fiska gæti hafa sloppið og að þarna hefði mögulega fundist skýring á veiðum á regnbogasilungi á Vestfjörðum síðastliðið sumar. Matvælastofnun útilokar að málin tengist og bendir í því ljósi á að flestir þeir fiskar sem veiddust af eftirlitsmanni Fiskistofu á Vestfjörðum síðasta sumar voru um hálft kíló að þyngd. Á sama tíma og þær veiðar stóðu yfir var fiskurinn í þeirri kví sem nú um ræðir um tvö kíló, en meðalþyngd fiska í kvínni er nú fjögur kíló.

Rannsókn Matvælastofnunar á mögulegum sleppingum regnbogasilungs síðastliðið sumar er enn í gangi og liggja endanlegar niðurstöður ekki fyrir að svo stöddu. Fylgst verður með fjölda slátraðra regnbogasilunga úr þeim kvíum á Vestfjörðum sem ala fisk sambærilegan þeim sem Fiskistofa veiddi í eftirlitsferð sinni og mun framhald rannsóknarinnar byggja á þeim upplýsingum.

Deila: