Kristján ráðinn framkvæmdastjóri LF

Deila:

Kristján Þ. Davíðsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Landssambands fiskeldisstöðva. Kristján er fæddur á Þingeyri við Dýrafjörð. Hann er sjávarútvegsfræðingur frá Sjávarútvegsháskóla Noregs í Tromsö. Kristján hefur starfað í sjávarútvegi og tengdum greinum á Íslandi, í Noregi og víðar í fjóra áratugi, m.a. við útflutning sjávarafurða, tækja- og hugbúnaðar og við fjármál, stjórnun og ráðgjöf. Hann er ræðismaður Brasilíu á Íslandi.

KristjanThDavidsson-2016-passamynd-869x675

„Það er mikill fengur að Kristjáni til þessara starfa og ég hlakka til samstarfsins við hann“, segir Einar K. Guðfinnsson stjórnarformaður Landssambandsins. „Kristján hefur víðtæka reynslu hérlendis jafnt sem erlendis og þekkir vel til atvinnugreinarinnar. Það er mikill ávinningur fyrir okkur innan fiskeldisins sem er vaxandi atvinnugrein sem miklar vonir eru nú bundnar við á Íslandi“.

Kristján tekur við af Höskuldi Steinarssyni sem verið hefur framkvæmdastjóri Landssambands fiskeldisstöðva en hann lætur nú af störfum að eigin ósk. Höskuldur vinnur að uppbyggingu öflugs fyrirtækis sem sinna mun þjónustuhlutverki fyrir fiskeldisfyrirtækin á Íslandi. Er það til vitnis um þá jákvæðu þróun sem nú er að verða í íslensku fiskeldi.

„Ég þakka Höskuldi fyrir framúrskarandi störf fyrir Landssambands fiskeldisstöðva og atvinnugreinina í heild. Þó mikil eftirsjá sé af honum úr núverandi starfi er gott til þess að vita að hann verður nálægur í nýjum verkefnum sem meðal annars tengjast atvinnugreininni. Það er líka mikilvægt fyrir okkur  að hann mun verða nýjum framkvæmdastjóra til halds og trausts á næstunni“.

Einar K. Guðfinnsson formaður LF segir það til marks um þær miklu væntingar sem nú eru til fiskeldisins að fjöldi umsókna barst um stöðu framkvæmdastjórans þegar hún var auglýst. Um var að ræða stóran hóp af hæfu fólki með margvíslega reynslu, menntun og bakgrunn.

 

Deila: