Leggja til 30 veiðidaga
Grásleppuveiðar hófust 20. mars sl. Tólf dagar eru því liðnir af vertíðinni hjá þeim sem hófu veiðar á fyrsta degi grásleppu.
Hafrannsóknastofnun lauk útreikningum úr mælingum rannsóknaleiðangurs sem fram fór í byrjun mars. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu hefur nú til skoðunar bréf stofnunarinnar þar sem gerð er grein fyrir niðurstöðum mælinga á stærð veiðistofns grásleppu. Hafrannsóknastofnun leggur til að grásleppuafli fari ekki umfram 6.355 tonn, sem er 445 tonnun minnkun milli ára.
Ráðuneytið óskaði eftir sjónarmiðum LS á tillögum Hafró. Félagið hefur svarað erindinu þar sem lagt er til að veiðidagar á yfirstandandi grásleppuvertíð verði 36 sem er 4 daga viðbót við veiðitíma í fyrra. Í rökstuðningi LS er meðal annars bent á eftirfarandi:
- Færri stunda veiðar nú en í fyrra
- Samdráttur í veiðum milli ára
- Lakari útbreiðsla á gjöfulum veiðisvæðum
- Markaðslegar aðstæður
Búast má við að ráðuneytið tilkynni um fjölda veiðidaga í þessari viku.