Kolmunnaveiðarnar eru þolinmæðisvinna

Deila:

Víkingur AK var í gær á leið til Vopnafjarðar með um 2.150 tonn af kolmunna og skipið var væntanlegt til hafnar upp úr miðnættinu. Venus NS fór frá Vopnafirði í fyrrakvöld eftir stutt stopp en skipið kom til hafnar snemma í morguninn með um 2.400 tonn af kolmunna.

Að sögn Alberts Sveinssonar, skipstjóra á Víkingi, í samtali á heimasíðu HB Granda, er frekar rólegt yfir kolmunnaveiðunum í færeysku lögsögunni.
,,Við vorum að hífa þetta 210 til 400 tonn eftir 19 til 20 tíma hol þannig að það var ekki mikill kraftur í veiðunum. Þetta er því þolinmæðisvinna,“ segir Albert en hann var með skipið á veiðum norðaustan við Færeyjar í veiðiferðinni.
,,Kolmunninn er blandaður af stærð og ágætt hráefni. Ég á von á því að við skjótumst út aftur fyrir sjómannadag og reynum að ná einhverjum tonnum. Það er verst hve langt er á miðin en þangað er 30 tíma sigling frá Vopnafirði,“ segir Albert Sveinsson.
 

 

Deila: