SVN greiddi 600 milljónir í veiðigjöld

Deila:

Samfélagsspor Síldarvinnslunnar í Neskaupstað nam 13,2 milljónum króna á hvern starfsmann á síðasta ári. Alls greiddi samstæðan 600 milljónir króna í veiðigjöld á árinu.

Samfélagsspor Síldarvinnslunnar

Nú hefur endurskoðunarfyrirtækið Deloitte reiknað út svonefnt samfélagsspor Síldarvinnslusamstæðunnar fyrir árið 2016. Samfélagsspor er tiltekin aðferðafræði sem notuð er til að greina heildarframlag fyrirtækja til samfélagsins í formi skatta og opinberra gjalda. Til Síldarvinnslusamstæðunnar töldust árið 2016 auk móðurfélagsins Gullberg ehf., Bergur-Huginn ehf., Fóðurverksmiðjan Laxá hf., Runólfur Hallfreðsson ehf. og SVN eignafélag ehf.

Hér skal getið um nokkrar athyglisverðar niðurstöður samfélagssporsins:

–          Rekstrartekjur samstæðunnar námu 22,4 milljörðum króna á árinu 2016.

–          Fjöldi ársverka var 347.

–          Meðaltal heildarlauna starfsmanna á árinu var 10,9 milljónir króna.

–          Samfélagssporið nam 13,2 milljónum króna fyrir hvern starfsmann á árinu 2016.

–          Til viðbótar við samfélagssporið styrkir Síldarvinnslan ýmis konar lista- og menningarstarfsemi, björgunarsveitir, íþróttafélög, sjúkrastofnanir og fleiri samfélagsleg verkefni að upphæð 50-60 milljónir króna á ári.

–          Veiðigjöld námu 600 milljónum króna árið 2016.

–          Á árinu 2016 greiddi samstæðan 110 milljónir króna í kolefnisgjald.

–          Alls námu greiddir og innheimtir skattar ásamt opinberum gjöldum samstæðunnar 4,6 milljörðum króna á árinu 2016. Ekki eru metin margfeldisáhrif vegna kaupa á innlendum vörum og þjónustu.

 

Deila: