Nýr Jón Kjartansson kominn heim

Deila:

Nýr Jón Kjartansson SU kom til heimahafnar á Eskifirði í morgun. Skipið er keypt frá Hjaltlandseyjum og hét áður  Charisma, byggt 2003 í Noregi og er 70,7 metrar á lengd og 14,5 metrar á breidd. Aðalvél skipsins er MAK 6000 kw og 8160 hestöfl.

Skipið ber 2.200 rúmmetra í 9 tönkum með RSW kælingu og mun koma til með að leysa af hólmi aflaskipið Jón Kjartansson SU 111 sem kominn er til ára sinna en hefur þjónað félaginu vel í gegnum tíðina.

Nýr Jón Kjartansson mun afla hráefnis í nýtt uppsjávarfrystihús sem tekið var í notkun í nóvember á síðasta ári og fyrirhugað er að það fari á makrílveiðar í byrjun ágúst næstkomandi.
Ljósmynd Pétur S Sigurðsson
Myndin er fengin af skipasíðunni http://thorgeirbald.123.is/

 

 

 

Deila: