Vilja vita hver kaupir af þeim fiskinn

Deila:

Landssamband smábátaeigenda bíður nú svara frá fiskmörkuðunum hvort fallist verður á beiðni félagsins um að seljendur fái upplýst hver kaupi af þeim aflann.

Á fundi sem LS átti með forsvarsmönnum fiskmarkaða deildu aðilar með sér áhyggjum af lækkandi fiskverði.  „Einkum er það þorskurinn sem var ræddur og það smánarverð sem hann hefur verið seldur á það sem af er júlí.  Fundurinn var hreinskiptinn enda fara hagsmunir beggja aðila saman.  Báðir þurfa á hvor öðrum að halda,“ segir í færslu á heimasíðu LS.

Þar segir ennfremur: „Fréttir af verðlækkun hefur vakið upp margar spurningar þar sem hún er langt umfram það sem nemur styrkingu krónunnar.  Fiskkaupendur hafa eftir að málið kom í umfjöllun bent á að auk þess hafi laun og tilkostnaður í landi hækkað og tveggja mánaða verkfall sjómanna hafi skaðað ímynd Íslendinga um afhendingaröryggi.  Auk þessa séu færri að vinna fisk nú í sumar en verið hefur þar sem erfitt sé að fá fólk í sumarafleysingar.

Vitneskja liggur fyrir um að smábátaeigendur séu að þreifa fyrir sér með sölu aflans beint á erlendan markað.  Í þeirri vinnu eru flutningsleiðir, kostnaður og verð á mörkuðum undir.

Á fyrstu 5 mánuðum ársins nam útflutningur fersks þorsks alls 8.065 tonnum en á sama tíma í fyrra höfðu verið flutt út 9.950 tonn, samdrátturinn nemur því 19%.  Þar munar mestu um verkfallsmánuðunum janúar og febrúar þegar helmingsminnkun var milli ára.  Staðan breyttist síðan í mars, apríl og maí sem allir skiluðum meira magni til útflutnings en í fyrra.

Frekari upplýsingar um útflutning sem unnar eru upp úr gögnum frá Hagstofu Íslands verða birtar á næstu dögum.“

 

Deila: