Þorgerður Katrín og Michael Gove sammála um mikilvægi frjálsra milliríkjaviðskipta

Deila:

Þogerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hitti í gærmorgun Michael Gove, umhverfisráðherra í bresku ríkisstjórninni, en undir ráðuneyti hans heyra sjávarútvegs- og landbúnarmál. Hann hefur undanfarna daga heimsótt bæði Danmörku og Færeyjar.

Í ráðuneytinu fékk Gove kynningu á íslenska fiskveiðistjórnunarkerfinu og starfsemi Hafrannsóknastofnunar. Ráðherrarnir notuðu tækifærið og ræddu ýmis mál tengjast sjávarútvegi og landbúnaði í löndunum tveimur. Þorgerður Katrín lagði áherslu á sjálfbærar fiskveiðar og mikilvægi þess að strandríki sýni ábyrgð og semji um skynsamlega nýtingu sameiginlegra fiskistofna. Þau ræddu einnig verslun með sjávar- og landbúnaðarafurðir, matvælaöryggi, hvalveiðar og sitthvað fleira.

Bæði löndin hafa stutt aukið frelsi í milliríkjaviðskiptum og voru ráðherrarnir sammála um að svo verði áfram í framtíðinni. Síðar um daginnheimsótti Gove meðal annars íslensk fyrirtæki sem tengjast sjávarútvegi.

 

Deila: