Góð ufsaveiði á halanum

Deila:

,,Það er búin að vera fínasta ufsaveiði á Halanum að undanförnu. Það er dálítið af þorski með ufsanum en ekkert til vandræða,“ segir Heimir Guðbjörnsson, skipstjóri á ísfisktogaranum Helgu Maríu AK í samtali á heimasíðu HB Granda á laugardag.

Að sögn Heimis var farið frá Reykjavík sl. fimmtudagsmorgun og á leiðinni norður á Vestfjarðamið var reynt við karfa í Kolluálunum og Víkurálnum.

,,Karfaaflinn var alveg þokkalegur en við vorum svo á Halanum í gærkvöldi og nótt og fengum ágætan ufsaafla. Nú erum við á Kögurgrunni, sem er fyrir austan Halann, eða um 30 mílur norðvestur af Ísafjarðardjúpi og erum að reyna við þorsk. Það er rólegt í augnablikinu en hér hefur verið fínasta þorskveiði,“ segir Heimir en hann segir að reynt sé að fá þorsk, karfa og ufsa jöfnum höndum í þessum veiðiferðum.

Blíðskaparveður hefur verið á miðunum að undanförnu og Heimir segir að það sé ekki oft sem menn fái algjörlega heiðskíran himinn og gott skyggni frá Halanum til lands.

,,Það var tilkomumikil sjón af sjá vestfirsku fjöllin rísa úr sæ án þess að þoka eða ský væru að þvælast fyrir okkur,“ sagði Heimir Guðbjörnsson.
 

 

Deila: