Íslenska sjávarútvegssýningin sett í tólfta sinn

Deila:

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, setti í gær Íslensku sjávarútvegssýninguna 2017, ásamt Ármanni Ólafssyni, bæjarstjóra Kópavogs. Þetta er í tólfta skipti sem Íslenska sjávarútvegssýningin, IceFish, er haldin  en fyrsta sýningin fór fram árið 1984. „Sýningin er þríæringur, þ.e. haldin á þriggja ára fresti að ósk sýnenda. Íslenska sjáv­ar­út­vegs­sýn­ing­in hefur alltaf notið mik­illa vin­sælda meðal al­menn­ings, eins og aðsókn­in á síðustu sýn­ingu ber með sér, en þá mættu yfir 15 þúsund gest­ir,“ segir í frétt frá sýningarhöldurum.

„Þegar samkeppni um markaði fer harðnandi er svarið aukin þekking, nýsköpun og þróun, líkt og við Íslendingar höfum gert, en jafnframt er brýnt að við miðlum farsælli sögu íslensks sjávarútvegs á umliðnum árum. Þar spilar Íslenska sjávarútvegssýningin stórt hlutverk sem vettvangur fyrir tengslamyndun og miðlun upplýsinga,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegsráðherra, í ávarpi sínu. „Fyrirtækin sem hér eru samankomin eru í fremstu röð á sviði vinnslu, veiði og nýsköpunar. Aðrir gestir koma úr ólíkum áttum en öll eigum við sameiginlegt að vilja sækja lengra og skapa meiri verðmæti. Mín reynsla af þessum sýningum er að þeim loknum er maður betur upplýstur um hvar við stöndum en ekki síður hvert við stefnum og hvernig við munum komast þangað. Þessi sýning verður án efa engin undantekning.“

Í ár koma fram nærri 500 ný fyrirtæki, vörur og vörumerki á Íslensku sjávarútvegssýningunni og aðilar frá samtals 22 nýjum löndum taka þátt. Alþjóðlegum þátttakendum hefur fjölgað um 41% frá því sýningin var haldin síðast. Á meðal þátttakenda eru mun stærri aðilar frá Danmörku og Noregi en hafa verið áður á sýningunni og nýir þátttakendur frá fjarlægum stöðum á borð við Bangladess, Indland, Perú, Bandaríkin, Tyrkland, Spán, Portúgal og Litháen.

„Við bjóðum stolt til leiks gesti frá sex heimsálfum. Þeir koma ekki aðeins til Íslands vegna höfðinglegrar gestrisni ykkar heldur líka vegna þess að þið eruð stöðugt í fararbroddi á heimsvísu í þróun tæknibúnaðar fyrir sjósókn og fiskvinnslu. Og líka vegna þess að þið horfið til framtíðar í því skyni að tryggja sjálfbærnina í sjávarútveginum til langs tíma,“ sagði Mari­anne Rasmus­sen-Coull­ing, fram­kvæmda­stjóri Íslensku sjávarútvegssýningarinnar  í ávarpi sínu, „Ég hef fengið mikið dálæti á þessari atvinnugrein og þessari þjóð á þeim 22 árum sem liðin eru síðan ég kom hingað fyrst sællrar minningar.  Í ár fögnum við 33 ára afmæli Íslensku sjávarútvegssýningarinnar. Það er alltaf sönn ánægja að snúa aftur hingað en það sem skiptir þó meiru er að á komandi árum mun sú umræða og þeir tengiliðir sem skapast á þessari sýningu leika lykilhlutverk í að móta framtíð atvinnuveiða.“

„Við erum stolt af því að hýsa þennan tilkomumikla viðburð í Kópavogi og útvega þannig vettvang fyrir öll helstu fyrirtæki í sjávarútveginum, bæði íslensk og erlend, til að miðla þekkingu sinni og tækninýjungum,“ segir Ármann Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs. „Íslenskur sjávarútvegur hefur verið í fararbroddi í tæknilegri þróun, allt frá því að þróa siglingarkerfi og fiskleitarkerfi til þess að hanna nýjan búnað og tæki. Margar af þessum nýjungum eru til sýnir hér á Íslensku sjávarútvegssýningunni.“

Þorgerður KatrínGunnarsdóttir skoðaði  sýninguna eftir formlegu opnunina. Guðmundur Bragason, framkvæmdastjóri Marás, er að benda henni á áhugaverð atriði. Á milli þeirra er Mari­anne Rasmus­sen-Coull­ing, fram­kvæmda­stjóri Íslensku sjávarútvegssýningarinnar.
Ljósmynd Jóhann Ólafur Halldórsson.

 

 

 

Deila: