Forsætisráðherra Portúgals dásamaði sjávarafurðir VSV

Deila:

Antónío  Costa, forsætisráðherra Portúgals, fékk að bragða bæði saltaðan þorsk og þorskhrogn frá Vinnslustöðinni á bæjarhátíð þar í landi fyrr í þessum mánuði og dásamaði íslensku sjávarafurðirnar. Hann þeysir nú um sveitir, bæi og borgir vegna sveitarstjórnakosninga 1. október. Frá þessu er sagt á heimasíðu Vinnslustöðvarinnar.

Sölu- og markaðsfyrirtæki VSV, About fish Portugal, hefur bækistöðvar í Oliveira de Azeméis, 20 þúsund manna bæ 35 km suður af Portó. Þar var hefðbundin bæjarhátíð 9. og 10. september, vettvangur heimafólks til að kynna framleiðsluvörur sínar: landbúnaðarafurðir og aðrar matvörur, hannyrðir, listaverk og handverk af öllu mögulegu tagi.

VSV saltfiskur í PortúgalNuno Araújo, sölustjóri About fish Portugal, og José Gandra, sölumaður fyrirtækisins, ákváðu að kynna afurðir VSV á bæjarhátíðinni og fundu leið til að gera þær gjaldgengar á kynningu framleiðslu heimamanna. Þeir notuðu til þess sérstakt héraðsbrauð, Pâo de UI, í sneiðum eða bjuggu til brauðkollur til að hafa með saltfiski og hrognum frá Eyjum.

Ekki nóg með það. Til liðs við þá About fish-félaga gekk líka viðskiptavinur þeirra á svæðinu sem kaupir sjávarafurðir frá VSV og gaf gestum að smakka grillaðan, niðursoðinn þorsk með heimabakaða brauðinu.

„Við nefndum sýningarbásinn okkar Bacalhau de UI og þó ég segi sjálfur frá slógum við í gegn!“ segir Nuno Araújo glaðbeittur og stoltur.

„Við sýndum þarna og sönnuðum að þorskinn og hrognin má nota á marga vegu í matargerð. Móttökurnar voru fínar. Allir voru glaðir og ánægðir, ekki síst forsætisráðherrann.“

Antónío  Costa var reyndar ekki þarna á ferð sem forsætisráðherra heldur flokksformaður til að styðja við bakið á frambjóðanda sínum til bæjarstjórnar í Oliveira de Azeméis í kosningunum 1. október.

Costa er annars í hópi mest áberandi og reynsluríkustu stjórnmálamanna Portúgala. Hann er lögfræðingur að mennt og var ráðherra ýmissa málaflokka í ríkisstjórnum á árunum 1997 til 2005. Þá gerðist hann borgarstjóri í Lissabon og gegndi því embætti í 10 ár eða þar til hann myndaði núverandi ríkisstjórn Portúgals í nóvember 2015.

 

Deila: