Stefán kjörinn formaður Árborgar

Deila:

Stefán Hauksson Þorlákshöfn kosinn formaður Árborgar sem haldinn var á Eyrarbakka í fyrradag. Stefán tekur við af Þorvaldi Garðarssyni sem gengt hefur formennsku í Árborg frá stofnun félagsins árið 1992 eða í aldarfjórðung.

Þorvaldur gaf ekki kost á sér til endurkjörs sem formaður.  Hann verður þó áfram í stjórn Árborgar þar sem hann mun gegna varaformennsku.

Í lok fundar þakkaði Örn Pálsson framkvæmda- stjóri LS Þorvaldi sérstaklega fyrir hans góðu störf.  Þorvaldur væri afar sterkur málsvari fyrir smábátaeigendur, rökfastur og kæmi sjónarmiðum sínum öfgalaust til áheyrenda, maður sem hlustað væri á.  Alltaf boðinn og búinn að sinna baráttumálum trillukarla.

Örn sagðist vona að þó Þorvaldur yrði ekki lengur formaður Árborgar gætu smábátaeigendur áfram leitað í hans mikla reynlsubanka.

Version 2

Auk Stefáns skipa stjórn Árborgar eftirtaldir:

 

Gísli Unnsteinsson                   Hveragerði

Guðmundur Ingi Guðjónsson   Eyrarbakka

Ólafur Ingi Sigurmundsson      Selfossi

Þorvaldur Garðarsson              Þorlákshöfn

Meðal ályktana fundarins er að línuívilnun nái til allra dagróðrabáta undir 30 tonnum, þar sem ívilnun komi aðeins á fyrstu 4.000 þorskígildin

Þá vildi fundurinn að ekki verði hróflað við stjórnkerfi fiskveiða með sameiningu króka- og aflamarks.  Óheimilt verði að flytja krókaveiðiheimild yfir í aflamark.  Krókaaflamarksbátum verði heimilt að veiða með þorskanetum.

 

Deila: