Örfirisey til veiða í byrjun desember

Deila:

Frystitogarinn Örfirisey RE er nú í slipp hjá Skarvik AS í Svolvær í Norður-Noregi en skipið varð fyrir því óhappi í lok október þegar það var að veiðum í Barentshafi að bilun varð í skrúfubúnaði. Búið er að komast að orsökum bilunarinnar og standa vonir til að togarinn komist aftur til veiða í byrjun næsta mánaðar.

Eins og greint hefur verið frá á heimasíðu HB Granda varð Örfirisey aflvana vegna bilunar í skrúfubúnaði við veiðar í rússnesku landhelginni, um 440 sjómílur norður af Båtsfjord í Norður-Noregi aðfararnótt 27. október sl. Norska olíuskipið M/T Norsel dró Örfirisey til Båtsfjord og kom skipið til hafnar seinnipart miðvikudagsins 1. nóvember.
Að sögn Herberts Bjarnasonar, tæknistjóra skipa hjá HB Granda, var byrjað á að landa afla skipsins og í framhaldi af því var kafari sendur til að skoða hvort hægt væri að gera við skrúfubúnaðinn með skipið á floti. Það reyndist útilokað. Fullbókað var í slippnum í Kirkenes og því var skipið dregið til Svolvær. Þangað kom Örfirisey aðfaranótt sl. miðvikudags. Vinna við skipið hófst strax eftir komuna. Eftir að stýrið var fjarlægt var skrúfan opnuð til að komast að orsök þess að hún virkaði ekki sem skildi.
,,Þá kom í ljós að svokallaður skiptiteinn, sem stjórnar stöðu skrúfublaða, er brotinn og óviðgerðar hæfur. Búið er að setja í gang smíði á nýjum skiptiteini hjá framleiðanda skrúfubúnaðarins og standa vonir til að viðgerð ljúki um eða eftir mánaðamótin þannig að skipið komist aftur til veiða í byrjun desembermánaðar,“ segir Herbert Bjarnason.

 

Deila: