Leggja til veiðistöðvun á rækju

Deila:

Hafrannsóknastofnun hefur gefið út ráðleggingar um að veiðar á rækju í Arnarfirði og Ísafjarðardjúpi verði ekki heimilaðar fiskveiðiárið 2017/2018.

Vísitala veiðistofns rækju í Arnarfirði var í sögulegu lágmarki og var undir varúðarmörkum stofnsins. Vísitala veiðistofns rækju í Ísafjarðardjúpi hefur farið lækkandi frá árinu 2012 og haustið 2017 var hún undir varúðarmörkum stofnsins. Lítið var af þorski í fjörðunum en magn ýsu var svipað og haustið 2016. Nánari upplýsingar um niðurstöður stofnmælingarinnar, veiðar og ráðgjöf má nálgast í meðfylgjandi skjölum.

Veiðar hafa verið stundaðar bæði í Arnarfirði og Ísafjarðardjúpi þennan áratug. Í Arnarfirði hefur árlegur afli verið á bilinu 124 tonn til 475 tonn. Í Isafjarðardjúpi hefur aflinn verið frá 491 tonni á ári upp í 1.182 tonn.

Forsendur ráðgjafar má nálgast í meðfylgjandi skjölum:

 

Deila: