Til veiða á nýju ári

Deila:

Ísfisktogarinn Gullver NS er fyrsta skipið í Síldarvinnsluflotanum sem heldur til veiða á árinu 2018. Gullver lét úr höfn á Seyðisfirði í gær kl 14.00. Frystitogarinn Blængur NK mun halda til veiða klukkan 10.00 í dag en Vestmannaeyjatogararnir Vestmannaey og Bergey munu leysa festar seinni partinn á fimmtudag.

Ekki liggur fyrir hvenær uppsjávarskipin halda til veiða. Gert var ráð fyrir að þau héldu til kolmunnaveiða í færeysku lögsögunni í byrjun ársins en þar sem ekki hefur tekist að semja um gagnkvæmar veiðar í lögsögum Íslands og Færeyja ríkir óvissa um það. Þá ber að geta þess að loðnuvertíð er á næsta leiti og eru menn þegar farnir að hyggja að henni.

 

Deila: