Árið byrjar vel

Deila:

Engey RE kom til hafnar í Reykjavík í hádeginu á þriðjudag eftir fyrstu veiðiferð ársins. Að sögn Friðleifs Einarssonar skipstjóra er ekki annað hægt að segja en að nýtt ár byrji vel. Aflinn var á milli 120 og 130 tonn af fiski en verið var að veiðum á Vestfjarðamiðum.

,,Við hófum veiðar í Víkurálnum í von um það fá eitthvað af karfa. Þar var hins vegar lítið um karfa en þeim mun meira af þorski. Við færðum okkur svo á Halann og loks í Þverálinn og á báðum stöðum fékkst dálítið af ýsu og ufsa í bland við þorskinn,“ segir Friðleifur í samtali á heimasíðu HB Granda, en farið var úr höfn í Reykjavík 3. janúar sl. Veður var skaplegt lengst af en þó þurfti að láta reka í um hálfan sólarhring vegna brælu.

,,Við fórum í einn túr á milli jóla og nýárs og aflinn í honum var svipaður að magni en þá fékkst nær eingöngu þorskur,“ segir Friðleifur Einarsson.

Vinnsla hófst í fiskiðjuveri HB Granda á Norðurgarði 2. janúar sl. og auk Engeyjar var Sturlaugur H. Böðvarsson AK í höfn á þriðjudag. Hinir tveir ísfisktogarar félagsins voru báðir að veiðum, Helga María AK á Vestfjarðamiðum og Ottó N. Þorláksson RE á suðvesturmiðum. Sturlaugur fór til veiða í fyrrakvöld og áformað var að Engey færi aftur til veiða í gærkvöldi.

Deila: