Auglýst eftir umsóknum um byggðakvóta
Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög skv. ákvæðum reglugerðar nr. 604/2017 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2017/2018.
- Bolungarvík
- Akureyrarkaupstaður (Grímsey og Hrísey)
- Borgarfjörður eystri
- Djúpivogur
Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögum sbr.
auglýsing (II) nr. 17/2018 í Stjórnartíðindum
- Vesturbyggð (Brjánslækur, Patreksfjörður og Bíldudalur)
- Ísafjarðarbæ (Þingeyri, Flateyri, Suðureyri, Hnífsdalur og Ísafjörður)
- Fjallabyggð (Siglufjörður og Ólafsfjörður).
Vakin er athygli á því að umsóknin telst ekki gild nema samningur um vinnslu fylgi.
Umsókn skal skila í tölvupósti á byggdakvoti@fiskistofa.is
Umsóknarfrestur er til og með 2. febrúar 2018