Plokkfiskur

Deila:

Þegar við sem erum orðin eldri, vorum ung, var plokkfiskur kannski ekki í sérstöku uppáhaldi hjá okkur, enda var hann afgangur kvöldmatar gærdagsins, sem kannski var ekki heldur í uppáhaldi hjá okkur. Ýsa enn og aftur, eða þannig. Það sem við kláruðum ekki í gær, fengum við í kvöld. Nú horfir öðru vísi við og plokkfiskur er hreinlega fyrirtaksmatur með nútíma eldamennsku að mati flestra og á sumum góðum fiskveitingastöðum er „plokkarinn” einn af vinsælustu réttunum. Þess vegna leggjum við nú til að lesendur Kvótans plæsi á sig plokkfiski við fyrsta tækifæri.
Uppskriftin er fyrir 4 og er fengin af vefsíðunni fiskurimatinn.is

Innihald:

  • 800 g þorskur/ýsa
  • ½ laukur, skrældur og saxaður
  • ½ teningur kjúklingakraftur
  • 2 stk lárviðarlauf
  • 50 g smjör
  • 300 g kartöflur, skrældar og skornar í teninga
  • ½ tsk hvítur pipar
  • 1 tsk salt
  • 3 msk hveiti
  • 200 ml mjólk

Aðferð:

Setjið fiskinn ásamt lauknum og lárviðarlaufunum í pott með köldu vatni og fáið upp suðu, takið síðan af hitanum og setjið til hliðar. Bræðið smjör og bætið hveitinu út í og hrærið vel saman. Hellið mjólkinni út í og setjið með 100 ml af vatninu sem fiskurinn stendur í. Bætið kjúklingakraftinum, saltinu og piparnum út í og fáið upp suðu eða þar til sósan er orðin vel þykk. Sigtið fiskinn (passa að hafa laukinn með) og bætið út í sósuna ásamt kartöflunum og blandið vel saman. Smakkið til með salti og pipar.

 

Deila: