Fínasta loðnuveiði

Deila:

Það hefur verið fínasta loðnuveiði síðustu daga. Beitir NK landaði tæplega 2.000 tonnum í Neskaupstað í gær og í dag er Bjarni Ólafsson AK að landa rúmlega 1.000 tonnum til vinnslu í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar.

Börkur NK er á landleið með rúmlega 2.100 tonn og hafði heimasíða Síldarvinnslunnar samband við Hjörvar Hjálmarsson skipstjóra. „Það hefur verið fínasta veiði og töluvert að sjá. Loðnan virðist vera á stóru svæði og skipin eru víða að fá góðan afla. Það eru kannski 20 mílur á milli skipa og þau eru öll að gera það tiltölulega gott.

Við fengum þennan afla í 5 holum og erum yfirleitt að draga í 4-5 tíma. Við fengum til dæmis 1.600 tonn á 16 tímum og það er fjarri því að vera slæmt. Í síðasta holinu drógum við í 6 tíma og fengum 660 tonn. Það er í reynd mokveiði. Nú bíða menn spenntir eftir niðurstöðu rannsóknaskipanna en tvö skip frá Hafró og grænlenska skipið Polar Amaroq hafa verið við mælingar að undanförnu. Ég er bjartsýnn á að bætt verði verulega við kvótann. Það er svo víða loðnu að finna og auk þess er þetta fínasta loðna sem veiðist,“ sagði Hjörvar.

Einungis eitt norskt loðnuskip, Endre Dyrøy, er komið á miðin en heyrst hefur að fleiri séu væntanleg á næstunni.

Meðfylgjandi mynd er tekin um borð í Beiti NK á loðnumiðunum. Ljósm. Helgi Freyr Ólason

 

Deila: