Þremur tilboðum tekið
Fiskistofa hefur lokið úrvinnslu á tilboðum sem bárust í aflamarksskipti í janúar. Alls bárust 11 tilboð. Engin tilboð voru afturkölluð í samræmi við 5 .gr. reglugerðar nr. 607/2017 um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2017/2018. Að þessu sinni var 3 tilboðum tekið. Uppistaðan nú var þorskur í norskri lögsögu. Kaupandi af honum var Sólberg ÓF.
Hér má sjá niðurstöðu tilboðsmarkaðarins