Mikið af loðnu að sjá norðan við fyrra veiðisvæði

Deila:

Víkingur AK er nú á leiðinni frá Vopnafirði til Reykjavíkur, þar sem hitt uppsjávarveiðiskip HB Granda, Venus NS, er í höfn. Þess er beðið með óþreyju að niðurstöður Hafrannsóknastofnunar á mælingu stærðar og útbreiðslu loðnustofnsins liggi fyrir en þá fyrst verður ákveðið hvort bætt verður við útgefinn byrjunarkvóta.

,,Við lukum síðasta loðnutúrnum í bili með því að landa aflanum á Vopnafirði. Því var lokið fyrir miðnætti í gærkvöldi. Loðnuflekkurinn, sem við höfum verið að veiða úr austan við Langanes upp á síðkastið, gekk suður úr trollhólfinu og það varð úr að við tókum að okkur einn leitarlegg fyrir Hafrannsóknastofnun norður eftir fyrir austan Langanes. Í framhaldinu fórum við svo á veiðar. Ætli við höfum þá ekki verið 80 til 90 mílur frá landi, norðaustur af Vopnafirði, og á því svæði var mjög mikið af sjá af loðnu og við fengum góðan afla,“ segir Albert Sveinsson, skipstjóri á Víkingi í samtali á heimasíðu HB Granda.

Albert segist eiga von á því að mælingum á loðnustofninum ljúki í vikunni og því ætti einhverra frétta af framhaldinu að liggja fyrir fljótlega.

,,Það er mikilvægt að unnið sé fljótt og vel því það var mikil ferð á loðnunni suður úr trollhólfinu. Loðnan virtist ganga með kantinum og síðan dýpka á sér en það er uppskrift af göngumynstrinu eins og við þekkjum það. Hún ætti því fljótlega að skila sér upp á grunnin úti fyrir Suð-Austurlandi og loðnan fyrir norðan mun svo fylgja í kjölfarið,“ segir Albert en hann leynir því ekki að óvissan um framhaldið sé slæm.

,,Við gætum s.s. farið á kolmunnaveiðar í færeysku lögsögunni en það er uppskrift að a.m.k. vikulöngum túr. Það er búið að semja um aðgengi íslenskra skipa að færeysku lögsögunni en auðvitað væri best að tilefni sé til að auka loðnukvótann hér heima og taka þátt í alvöru loðnuvertíð,“ segir Albert Sveinsson.

Deila: