Byrjað að vinna loðnuhrogn

Deila:

Í nótt var byrjað að skera loðnu og hreinsa loðnuhrogn úr afla sem Venus NS kom með til Akraness. Hrognafyllingin í loðnunni, sem veiddist við Reykjanes, var þá komin í 24% og þroski hrognanna var um 70%.

Um 100 manns vinna í loðnuvinnslu HB Granda á Akranesi og að sögn Gunnars Hermannssonar, sem stýrir vinnslunni, er afkastagetan í hrognaskurði og þurrkun á hrognum fyrir frystingu um 1.200 til 1.500 tonn af hráefni á sólarhring. Síðan er hægt að frysta rúmlega 100 tonn af fullhreinsuðum og þurrkuðum loðnuhrognum á sólarhring.

,,Þessi farmur hentaði vel til að byrja vinnslu.  Við viljum gjarnan sjá meiri þroska og hann bara eftir að aukast. Við þurfum að þurrka hrognin í sólarhring áður en að frystingu kemur þannig að loðnuhrognafrysting hefst hjá okkur á morgun,“ segir Gunnar Hermannsson.

Deila: