Páll heim um helgina
Nú um helgina kemur Páll Pálsson ÍS 102, nýr skuttogari Hraðfrystihússins – Gunnvarar hf. til hafnar á Ísafirði. Heimsiglingin frá Kína sem hófst þann 22 mars sl. hefur gengið afar vel og ferðin því sóst með ágætum.
Skipið verður til sýnis almenningi laugardaginn 19. maí næstkomandi og hefst með athöfn við skipshlið kl. 14.00. Verður skipinu gefið nafn og það blessað. Auk þess verður smíði þess kynnt og boðið uppá veitingar.