Steikt bleikja með jógúrtsósu, brenndu spergilkáli og blómkáli
Nú er það bleikja, einstaklega fallegur og góður fiskur. Norðurheimsskautsfiskur sem á sér engan líka. Bleikjan veiðist í ám og vötnum á Íslandi og hringinn í kringum norðurpólinn en megnið af framboði á henni í heiminum kemur úr eldi íslenskra fiskeldisstöðva. Framboð í heiminum er líklega undir 10.000 tonn og ríflega helmingur héðan. Bleikjan er eftirsóttur matfiskur á fínum fiskveitingastöðum vestan hafs og niðri í Evrópu og þykir mörgum sælkerum hún mun betri en laxinn. Bragðið er alveg einstakt og holdið rauðara en á laxi, fita minni og hollustan alveg ótvíræð.
Þessa uppskrift sóttum við á heimasíðuna fiskurimatinn.is en henni er haldið út af Norðanfiski á Akranesi. Uppskriftin er fyrir 4
Innihald:
- 800 g bleikja
Jógúrtsósa
- 200 ml grísk jógúrt
- 3 hvítlauksgeirar
- Safi úr ½ sítróna
- Salt og pipar
- 1 msk hunang
- 1 knippi graslaukur
Grænmeti
- Spergilkál
- Blómkál
Aðferð:
Jógúrtsósa: Blandið öllu vel saman og geymið í kæli (geymist vel í 24 tíma).
Grænmeti og bleikja: Skerið spergilkál og blómkál í álíka stóra knúppa, setjið í eldfast mót og dassið yfir með ólífuolíu og kryddið með salti og pipar. Bakið í vel heitum ofni í u.þ.b.15–20 mín. Þegar grænmetið er langt komið er bleikjan steikt á vel heitri pönnu í u.þ.b. 2–3 mín. á hvorri hlið. Krydduð með salti og pipar. Sett á fat ásamt brennda grænmetinu og borin fram með jógúrtsósunni.