Maríneraður lax á grillið
Veðrið hefur óneitanlega áhrif á grillvertíðina á sumrin. Líklega er meira grillað fyrir norðan og austan um þessar mundir en sunnan og vestan. En hvað um það, það má alltaf komast í skjól með grillið ef þörf er á. Lax hentar einstaklega vel á grillið og er hann líka eins konar sumarboði, þegar hann byrjar að veiðast í ánum. Það hefur þó kannski breyst eftir að eldislax er í boði allan ársins hring og á viðráðanlegu verði. Því er bara að skella sé í búðina og kaupa það sem til þarf í þessa einföldu en góðu uppskrift og gera góðan kvöldverð.
Innihald:
3 dl sæt chilli sósa
Safi úr tveimur límónum
½ dl sojasósa
4 stykki af laxi, um 180 gr hvert
2 vorlaukar
4 límónubátar
Aðferð:
- Útbúið maríneringu í stórri skál. Blandið chillisósunni, límónusafanum og sojasósunni saman. Geymið 1 dl af maríneringunni til að pensla laxinn áður og eftir að hann hefur verið grillaður.
- Setjið laxastykkin í stóran plastpoka með rennilás og hellið maríneringunni í hann og lokið. Látið laxinn marínerast í 3 klukkustundir í ísskáp eða yfir nótt.
- Þegar laxinn er full maríneraður er kveikt á grillinu og það stillt á mikinn hita. Penslið grillgrinda og laxinn með matarolíu. Berið einnig maríneringu á laxinn. Grillið laxinn í 3 til mínútur á hvorri hlið.
- Takið laxinn af grillinu og penslið með því sem eftir er af maríneringunni. Klippið vorlaukinn yfir laxinn. Berið hann fram með límónubátunum, fersku salati og soðnum kartöflum.