Heimsins besti fiskur

Deila:

Heimsins besti fiskur fæst auðvitað hvergi annars staðar en á Íslandi. Hann er dreginn úr ómenguðum, köldum sjó á ýmis veiðarfæri og fær bestu meðferð sem fáanleg er alla leið á matardiska okkar neytenda. Sú leið er stutt og fljótleg og fiskur dreginn úr sjó að morgni getur verið í kvöldmatinn sama dag.

Þess vegna finnst okkur viðeigandi að vera með uppskrift sem ber það hógværa nafn Besti fiskréttur í heimi. Hana fundum við á vefsíðunni ynjur.is

Innihald:

  • 600 g fiskur (t.d. ýsa eða þorskur)
  • 1  laukur
  • 2 hvítlauksrif
  • 3 gulrætur
  • olía til steikingar
  • 1 askja kirsuberjatómatar (400 g)
  • 2 1/2 dl matreiðslurjómi
  • 2 msk tómatpúrra
  • 1 msk dijon sinnep
  • 2 msk sykur
  • 2 tsk steinselja (fersk eða þurrkuð)
  • chillikrydd
  • salt og pipar

Aðferð:

Hakkið lauk og hvítlauk smátt og skerið gulrætur í sneiðar. Steikið lauk, hvítlauk og gulrætur í olíu á pönnu og bætið svo tómötum, matreiðslurjóma, dijon sinnepi, tómatpúrru, sykri og steinselju á pönnuna og látið sjóða í 5 mínútur. Skerið fiskinn í bita og bætið honum út í sósuna. Látið sjóða í 5-6 mínútur. Smakkið til með salti og pipar. Gott að bera fram með soðnum kartöflum eða hrísgrjónum.

 

Deila: