Fínn makríll af Kap VE

Deila:

250 tonnum af makríl var landað úr Kap VE í Vestmannaeyjahöfn í gær. Þetta er fyrsti makríllinn sem Vinnslustöðin tekur á móti úr eigin skipi á vertíðinni. Fyrir helgi fékk VSV makríl til vinnslu úr Guðrúnu Þorkelsdóttur SU, skipi Eskju sem útgerðarfyrirtækið Huginn í Vestmannaeyjum hefur nú á leigu.

„Makríllinn er mjög fínn og fallegur fiskur með smávægilegri átu og veiðist suður af Vestmannaeyjum. Þetta lítur mjög vel út. Smávægilegir hnökrar voru í framleiðsluferlinu fyrstu klukkutímana á föstudaginn, sem eðlilegt er í upphafi. Nú gengur allt liðlega, eins og vera ber,“ segir Benoný Þórisson, framleiðslustjóri í Vinnslustöðinni í samtali á heimasíðu VSV.

 

Deila: