Manni bjargað af brennandi báti

Deila:

Mannbjörg varð þegar eldur kom upp í strandveiðibát um átta sjómílur norður af fjallinu Kögri, nyrst á Hornströndum, í morgun.

Skipstjóri bátsins hafði samband við Landhelgisgæsluna um klukkan 09.40 í morgun og tilkynnti að kveiknað hefði í bátnum. Nærstaddir bátar voru beðnir um að halda þegar á staðin auk þess sem björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar voru kölluð út ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar.

Skömmu síðar var skipverji bátsins sem var einn um borð kominn í björgunarbát en á þeirri stundu varð strandveiðibáturinn alelda. Klukkan 10 var búið að bjarga manninum um borð í annan strandveiðibát og var þyrlunni þá snúið við.

Björgunarskipið Gunnar Friðriksson frá Ísafirði er á leið á vettvang og mun kanna möguleika á að draga flak bátsins í land.

 

Deila: