Héldu til makrílveiða í Smugunni

Deila:

Þrjú skip Síldarvinnslunnar, Börkur, Barði og Beitir héldu til makrílveiða á sunnudag. Skipin héldu rakleiðis í smuguna og verða þar í veiðisamstarfi við við Vilhelm Þorsteinsson EA og Margréti EA. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar. Fleiri skip eru sögð á leiðinni til veiða.

Að sögn Grétars Arnar Sigfinnssonar, rekstrarstjóra útgerðar Síldarvinnslunnar, er heldur lítið að frétta af veiði en þó mun Venus vera á landleið. Grétar minnir á að veiði hafi byrjað rólega í fyrra en síðan hafi ræst úr henni. Þá segir hann að mestu máli skipti að nægilega mikið veiðist til að halda vinnslunni gangandi.

Í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað er allt klárt til að taka á móti makríl til vinnslu og þar eru menn sannfærðir um að vertíðin verði góð.

Deila: