Æfðu reykköfun um borð í togara

Deila:

Varðskipið Týr kom á dögunum til hafnar á Ísafirði vegna verkefna á Straumnesfjalli. Áhöfn varðskipsins notaði tækifærið til æfinga um borð í togaranum Stefni ÍS-28 en skipstjóri togarans veitti varðskipsmönnum góðfúslegt leyfi til þess. Ákveðið var að æfa reykköfun og slökkvistörf um borð í skipinu.
„Farið var með búnað og mannskap um borð í togarann og líkt eftir raunverulegu óhappi. Búnaðurinn var fluttur á milli með bátum og farið um borð á síðu skipsins. Stjórnandi og reykköfunarteymið fóru um borð og leituðu að týndum „manni“ í fyrir fram ákveðnu rými í skipinu auk þess sem dælubúnaði til slökkvistarfa var komið fyrir.

Áhöfn togarans tók einnig þátt í æfingunni og veitt upplýsingar um skipið og svæðin sem fara þurfti um. Reykkafara fundu hinn „týnda“ fljótt og hann fluttur til aðhlynningar.

Æfingin tókst afar vel og er nauðsynleg svo unnt sé að bregðast við óvæntum atburðum um borð í skipum,“ segir á heimasíðu Gæslunnar.

 

Deila: