Flytur erindi um fjöruhettu

Deila:

Dr. Stephen Hawkins mun á morgun flytja erindi í Málstofu Hafrannsóknastofnunar um endurheimt og langtíma sveiflur í stofnum fjöruhettu (Patella) og þara í kjölfar þess að olíuflutningaskipið Torrey Canyon fórst við suðvestur strönd Bretlands árið 1967. Málstofan verður haldin í fyrirlestrarsal á 1. hæð Skúlagötu 4 og hefst kl. 12:30. og verður jafnframt streymt á YouTube rás stofnunarinnar. Öll eru velkomin. Erindið verður flutt á ensku.

Árið 1967 átti sér stað alvarlegt olíuslys þegar olíuskipið Torry Canyon steytti á skerjum skammt undan suðvestur strönd Bretlands. Olíuslysið er eitt það versta í sögu Bretlands og hafði víðtæk, langvinn og alvarleg áhrif í fjöru og í sjó. Fyrirlesturinn lýsir niðurstöðum langtíma mælinga á þeim fjörum sem urðu hvað verst úti vegna olíuslyssins. Náttúrulegar stofnsveiflur fjöruhettu og þara náðu fyrst eðlilegu jafnvægi tæpum tveimur áratugum eftir slysið. Meðal annars hefur komið fram að olíuleysandi efni sem notuð voru í kjölfar slyssins virkuðu neikvætt og hægðu á endurheimt lífríkisins um mörg ár.

Stephen Hawkins er vistfræðingur og prófessor emerítus við raunvísindadeild háskólans í Southampton. Hann var sæmdur prófessorsstöðu 1995 en vann einnig til margra ára á hafrannsóknastöðinni í Plymouth (Bretland) og veitti þeirri stofnun forstöðu í átta ár. Hann hefur verið í samstarfi við íslenska vistfræðinga í nokkra áratugi um rannsóknir á lífríki fjara, nú síðast með Karli Gunnarssyni og Lilju Gunnarsdóttur á Hafrannsóknastofnun.

 

Deila: