Auka þekkingu á loðnu og dreifingu hennar

Deila:

Nýtt verkefni er nú rétt nýhafið hjá Matís og samstarfsaðila. Verkefnið nefnist eCAP og snýr að því að rekja loðnu með umhverfis erfðagreininum (eDNA).

eCAP miðar að því að nota DNA sem finnst í umhverfinu (hafinu) til að finna og rekja loðnu til að auka þekkingu á breyttri dreifingu hennar og til að bæta stofnstærðarmat og fiskveiðar á íslenskum hafsvæðum. Það mun gagnast íslenskum sjávarútvegi, veita nýjar og betri aðferðir við mat á stofnstærð og hjálpa til við að meta heildar leyfilegan afla. Einnig mun eCAP leiða til minni kolefnislosunar hjá íslenska flotanum þar sem reikna má með því að sigla þurfi minna í leit að loðnunni, ef markmið verkefnisins nást.

Samstarfsaðili Matís er Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, og stýrir stofnunin verkefninu.

Verkefnið er styrkt af Tækniþróunarsjóði.

 

 

 

Deila: