Mikið framleitt af mjöli og lýsi

Deila:

Fiskimjölsverksmiðjur Síldarvinnslunnar tóku á móti allmiklu magni af hráefni á árinu sem var að líða og verð á afurðum þeirra var þokkalegt. Samtals tóku verksmiðjurnar þrjár, í Neskaupstað, Helguvík og á Seyðisfirði, á móti 225.383 tonnum af hráefni á árinu.

Til samanburðar skal þess getið að á árinu 2017 tóku þær á móti 196.697 tonnum, 131.460 tonnum á árinu 2016 og 259.394 tonnum árið 2015. Aukningin á mótteknu hráefni á milli áranna 2017 og 2018 stafar fyrst og fremst af auknum kolmunnaveiðum en eins ræðst móttekið hráefni verksmiðjanna á hverju ári mjög af því hve mikil loðna er veidd.

Hér verða birtar upplýsingar um móttekið hráefni hverrar verksmiðju á árinu 2018 og einnig upplýsingar um framleiðslu þeirra á mjöli og lýsi á árinu:

 

   Móttekið magn hráefnis  Framleitt mjöl  Framleitt lýsi
 Neskaupstaður  166.896 34.560 10.695
 Seyðisfjörður  46.158 9.839 155
 Helguvík  12.329 2.359 1.085

 

Til samanburðar skal þess getið að á árinu 2017 tók verksmiðjan í Neskaupstað á móti 118.523 tonnum af hráefni, verksmiðjan á Seyðisfirði 59.420 tonnum og verksmiðjan í Helguvík 18.754 tonnum.

Ljósmynd Smári Geirsson

 

Deila: