Hafa góða reynslu af Gloríuflottrollunum
,,Það hefur sennilega verið árið 1999 að við byrjuðum að nota Gloríutroll til veiða á uppsjávarfiski og við erum nú með fjögur mismunandi troll af þessari gerð meðal okkar helstu veiðarfæra. Reynslan hefur verið mjög góð og veiðihæfnin gerist ekki betri.“
![](https://audlindin.is/wp-content/uploads/2019/01/Tómas-Kárason-skipstjóri-á-Beiti.png)
Tómas Kárason
Þetta segir Tómas Kárason, annar skipstjóra uppsjávar- veiðiskipsins Beitis NK, í samtali á heimasíðu Hampiðjunnar, en hann sendi Hampiðjumönnum kveðju fyrir jólin þar sem hann þakkaði fyrir samstarfið á sl. ári og Gloríu 2048 trollið sem hann sagði að notað hefði verið á makrílveiðum í Síldarsmugunni og á síldveiðum hér heima með mjög góðum árangri. Sagðist Tómas viss um að fleiri útgerðir myndu panta 2048 trollið á árinu 2019. Kveðja Tómasar gladdi Hampiðjumenn og það varð úr að ákveðið var að ræða betur við Tómas um reynsluna af notkun mismunandi Gloríuflottrolla.
,,Við byrjuðum á að nota Gloríu 2400 á kolmunnaveiðum. Trollið kom mjög vel út en upphaflega keypti Síldarvinnslan það sem tveggja báta troll fyrir Beiti og Börk NK.“
Tómas segir að næst hafi Gloría 1760 troll verið notað á makrílveiðum fyrir austan.
,,Trollið reyndist afbragðs vel. Höfuðlínuhæðin er góð og breiddin eða opnunin er eins og best verður á kosið. Allir, sem veitt hafa makríl þar sem síld er á svæðinu, vita að það getur verið erfitt að forðast að fá síld með makrílnum en með 1760 trollinu var það ekkert vandamál. Við losnuðum við síldina á grunnunum fyrir austan því trollið fór aldrei þangað niður þar sem síldin heldur sig,“ segir Tómas og víkur sögunni þá að 2048 trollinu.
,,Við notuðum Gloríu 2048 til makríl- og síldveiða í Síldarsmugunni og eins á síldveiðum fyrir vestan land. Árangurinn kom strax í ljós í fyrsta hali og veiðni þess í síldinni var með miklum ágætum. Ég veit ekki af hverju það stafar en sá grunur læðist að manni að 32 metra möskvar fremst í trollinu eigi þátt í því,“ segir Tómas en auk trollanna þriggja, sem nefnd eru hér að framan, segir Tómas að áhöfnin hafi notað Gloríu 1408 troll til loðnu- og síldveiða með góðum árangri.
,,Eftir að hafa kynnst kostum 2048 trollsins á síldveiðum verður 1408 trollið bara notað til loðnuveiða þegar það á við,“ segir Tómas Kárason.
Helix þankaðlarnir
Um það hvort smærri möskvar fremst í trollunum skýri aflaaukninguna umfram önnur troll segist Einar Skaftason veiðarfærahönnuður Hampiðjunnar, vita til þessa að menn innan flotans ræði þetta sín á milli.
,,Við teljum að þantæknin í Helix möskvunum í framhluta trollsins skýri þetta líka. Þankaðlar hafa það fram yfir hefðbundna kaðla að þeir titra miklu minna á toginu, þenja jafnframt trollið miklu betur út og mynda mun stærra trollop -og belgrými en hefðbundin troll. Það hefur þau áhrif að það kemur mun síður styggð að fisknum inni í trollinu. Þankaðlarnir eru hljóðlausir í sjónum, því þeir mynda ekki hljóðbylgjur frá sér inn í trollið vegna þess hve stöðugir þeir eru í drætti. Í öllum þremur Gloríutrollunum sem Tómas nefnir sérstaklega eru Helix kaðlar. 1760 metra trollið er með 40 metra langa möskva fremst, 2048 metra trollið í þessu tilviki er með 32 metra möskva fremst og 2400 metra trollið er með 64 metra möskva fremst,“ segir Einar Skaftason.