Óðinn fær olíu

Deila:

Varðskipið Óðinn er starfsmönnum Landhelgisgæslunnar kært enda þjónaði það þjóðinni og stofnuninni í tæpa hálfa öld. Skipið á sér langa og merkilega sögu en það hefur verið hluti af Sjóminjasafninu frá árinu 2008.

Skipinu er vel við haldið en á dögunum tóku nokkrir fyrrverandi skipverjar á Óðni sig til og settu afgangsolíu af varðskipinu Tý yfir á vélar gamla varðskipsins. Á meðfylgjandi myndum sjást smyrjararnir Haukur D. Grímsson og Jarl Bjarnason dæla afgangsolíunni af Tý en olíutunnurnar voru svo fluttar með dráttarbátnum Magna yfir í Óðinn. Einar H. Valsson, skipherra á Tý, fylgdist með og allir hjálpuðust að.

Mynd: Guðmundur ST. Valdimarsson

Deila: