Liggja í vari á Donegalflóa

Deila:

Það er slæmt veður á kolmunnamiðunum við Írland og spáin fyrir næstu daga er ljót. Ekki er gert ráð fyrir að fari að lægja fyrr en undir helgi eða á fimmtudag eða föstudag. Heimasíða Síldarvinnslunnar sló á þráðinn til Hálfdans Hálfdanarsonar skipstjóra á Berki og spurðist frétta.

„Nú er ekki mikið að frétta af veiðiskap. Við komum á miðin og tókum tvö hol og þurftum þá að sigla í var. Aflinn í þessum tveimur holum var samtals um 380 tonn. Við liggjum nú í vari á Donegalflóa sem er mikill flói norðarlega á Írlandi. Á bak við næsta nes er bærinn Kyllibegs en það er sjávarútvegsbær og þar er eina stóra fiskimjölsverksmiðjan á Írlandi eftir því sem ég veit best. Hér á Donegalflóa liggja einnig Beitir, Sigurður og Grandaskipin Víkingur og Venus ásamt einum Færeyingi og einum Norðmanni.

Aðalsteinn Jónsson er einnig að koma hingað þannig að segja má að það sé traffík á bleyðunni. Höfnin í Kyllibegs er síðan full af Norðmönnum. Það er ekkert útlit fyrir veiðiveður næstu daga og því er tíminn hér um borð nýttur til að lagfæra ýmislegt og þrífa. Það er alltaf nóg að gera. Hér á flóanum er bara sunnan gola og sveitabæir allt um kring þannig að við höfum ekki yfir neinu að kvarta. Í talstöðinni hljóma hins vegar sífelldar stormviðvaranir,“ segir Hálfdan.

Myndir Tómas Kárason.

Deila: