Norðurlöndin knýja á um alþjóðlegan plastsamning

Deila:

Umhverfisráðherrar Norðurlandanna kalla í sameiginlegri yfirlýsingu eftir nýjum alþjóðlegum samningi til að draga úr og fyrirbyggja losun plasts og örplasts í hafið. Yfirlýsingin var samþykkt á fundi ráðherranna sem haldinn var í Reykjavík í gær.

Plastmengun í hafi er hnattrænn umhverfisvandi sem ógnar lífi og vistkerfum Jarðar. Umhverfisráðherrar Norðurlandanna leggja áherslu á að vandinn sé í eðli sínu hnattrænn og ekkert eitt ríki geti leyst hann upp á sitt einsdæmi. Það þurfi sterkari aðgerðir á heimsvísu til að árangur geti náðst.

Yfirlýsing ráðherranna verður send til stofnana Evrópusambandsins og Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna sem og G7 og G20 ríkjanna.

„Norðurlöndin vilja setja markið hátt og vera leiðandi við að draga úr umhverfisáhrifum vegna plasts. Með yfirlýsingunni í dag styrkjum við stöðu okkar sem leiðandi afl á alþjóðavísu við að takast á við þetta brýna úrlausnarefni,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra.

Í yfirlýsingunni er Norræna ráðherranefndin beðin um að láta kanna hvaða tilteknu þætti ætti að taka með í alþjóðlegu samkomulagi gegn plastmengun í hafi, komi til þess. Niðurstöður vinnunnar verða meðal annars lagðar fyrir sérfræðihóp sem nú er að störfum á vegum Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna og fjallar um plastmengun og eflingu alþjóðlegra stjórnkerfa tengt henni.

Fundur norrænu umhverfisráðherranna fór fram í Reykjavík þar sem Ísland gegnir formennsku í Norrænu ráðherranefndinni á árinu 2019.

Yfirlýsing norrænu umhverfisráðherranna 

 

Deila: