Samgöngusamningur í boði hjá SVN

Deila:

Frá og með 1. maí getur starfsfólk Síldarvinnslunnar gert svonefndan samgöngusamning við fyrirtækið. Mun slíkur samningur gilda til 31. október. Samningurinn felur í sér að viðkomandi starfsmaður fer gangandi eða hjólandi í vinnuna a.m.k. þrjá daga í viku og auk þess fær hann 5.000 kr. í samgöngustyrk og er sá styrkur undanþeginn skatti.

Að sögn Hákonar Ernusonar starfsmannastjóra fela samningar af þessu tagi í sér ávinning bæði fyrir viðkomandi starfsmenn og fyrirtækið. Starfsmennirnir munu hreyfa sig meira og bæta heilsu sína auk þess sem þeir munu stuðla að sparnaði fyrir heimilin og bættu umhverfi. Fyrirtækið mun njóta þess að starfsmenn verða heilbrigðari auk þess sem minni þörf verður fyrir bílastæði við starfsstöðvar þess.

„Starfsmenn sem vilja gera samgöngusamning við fyrirtækið geta snúið sér beint til starfsmannastjóra eða stjórnenda á viðkomandi vinnustað. Því miður gefst sjómönnum á skipum fyrirtækisins ekki kostur á samgöngusamningi vegna eðlis starfa þeirra. Þeir eru hins vegar hvattir til að hreyfa sig og vinna að bættri heilsu,“ segir í frétt frá Síldarvinnslunni.

 

Deila: