Misjafnt íshlutfall

Deila:

Fiskistofa birtir nú niðurstöður vigtunar m.t.t. íshlutfalls hjá þeim vigtunarleyfishöfum þar sem veiðieftirlitsmenn Fiskistofu hafa viðhaft eftirlit með endurvigtun á tímabilinu 1. mars til 30. apríl 2019.

Taflan hér að neðan sýnir samanburð á  vegnu meðalíshlutfalli hvers vigtunarleyfishafa þegar eftirlitsmaður var ekki á vettvangi og íshlutfallinu þegar  eftirlit var haft með vigtuninni.

  • Vegið meðalíshlutfall er íshlutfall vigtunar þegar tekið er tillit til heildarmagns sem vigtað er í öllum vigtunum  frá tilteknu skipi hjá viðkomandi leyfishafa.
  • Þessi tala er borin saman við íshlutfallið þegar eftirlitsmaður er viðstaddur endurvigtun og mismunurinn í prósentustigum er birtur.

Taflan sýnir einnig heildarafla sem viðkomandi skip landaði hjá vigtunarleyfishafanum á tímabilinu.

 

 

 

Deila: