Fiskistofa óskar eftir tilboðum í „Rússaþorsk“

Deila:

Fiskistofa auglýsir nú eftir tilboðum í skipti á aflamarki í þorski innan lögsögu Rússlands, samtals 185 tonnum í skiptum fyrir þorsk innan íslensku lögsögunnar.

Við mat tilboða er stuðst við meðalverð aflamarks síðasta mánaðar. Viðmiðunarverð síðasta mánaðar: þorskur 230,95 kr/kg.

Tilboðsmarkaðurinn opnaði í gær. Ekki er gerð krafa um lágmarkstilboð. Samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu ber að greiða 12.900 krónur fyrir hverja úthlutun aflaheimilda á tilboðsmarkaði. Þannig ber tilboðsgjafa að greiða þá upphæð fyrir hvert tilboð sem tekið er að fullu eða að hluta.

Frestur til að skila tilboðum er til kl. 16:00 miðvikudaginn 12. júní 2019.

Deila: