Annir í frystigeymslunni

Deila:

Makrílvertíð er ávallt annatími hjá starfsmönnum frystigeymsla Síldarvinnslunnar í Neskaupstað en makrílvinnsla hófst sl. laugardag. Í frystigeymslunum er tekið á móti allri framleiðslu fiskiðjuvers fyrirtækisins og einnig landa skip sjófrystum afurðum beint í geymslurnar. Heimir Ásgeirsson, verkstjóri í frystigeymslunum, segir að fastir starfsmenn í frystigeymslunum séu fjórir talsins en síðan komi fleiri til starfa við upp- og útskipanir.

„Það fer mikið magn í gegnum frystigeymslurnar á makrílvertíðinni. Fyrstu fimm sólarhringa vertíðarinnar hefur verið samfelld vinnsla í fiskiðjuverinu og þá hefur Hákon EA landað einum farmi af sjófrystum makríl. Auðvitað höfum við nóg pláss því frystigeymslurnar rúma á bilinu 15 til 18 þúsund tonn. Mikið af makrílnum er flutt út í gámum en síðan koma einnig flutningaskip og lesta misjafnlega mikið magn. Eitt er víst að það verður nægum verkum að sinna á makrílvertíðinni sem nú er nýhafin,“ segir Heimir í samtali á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Ekkert lát er á makrílvinnslu í Neskaupstað. Á mánudag kom Bjarni Ólafsson AK til löndunar með um 500 tonn og í gær kom Margrét EA  með um 900 tonn. Skipin mættust á Norðfirði skömmu fyrir hádegi eins og meðfylgjandi mynd sýnir.
Ljósmynd Smári Geirsson

 

Deila: