Fiskistofa boðar drónaeftirlit

Deila:

Eftirlitsmenn Fiskistofu munu  fljúga ómönnuðum loftförum til eftirlits í febrúar og viljum við minna á að allar upptökur eru skoðaðar vel og fiskur sem fer fyrir borð er tegundargreindur. Þetta kemur fram á vef stofnunarinnar. Þar eru sjómenn og útgerðarmenn hvattir til að kynna sér vel reglur og lög um stjórn fiskveiða.

Nokkur atriði til að huga að:

  • Óhætt er að sleppa hlýra og ef hann er lífvænlegur.

  • Skylt er sleppa beinhákarli, háfi og hámeri, ef lífvænleg.

  • Heimilt er að sleppa lífvænlegri tindaskötu.

  • Sleppa á grásleppu sem fæst í  þorskfiskanet.

  • Heimilt er að sleppa lífvænlegum rauðmaga við hrognkelsaveiðar.

  • Komi lúða um borð í veiðiskip sem meðafli á umsvifalaust að sleppa lífvænlegri lúðu.

  • Við línuveiðar skal sleppa allri lúðu með því að skera á taum línunnar.

  • Við handfæra- og sjóstangaveiðar á að losa lúðu varfærnislega af krókum eða skera á lykkju slóðans áður en lúða kemur um borð.

Deila: