Heimsfrægir kokkar á Saltfiskviku

Deila:

Saltfiskvika formlega sett við athöfn í Salt eldhúsi við Þórunnartún um miðja vikuna. Frú Eliza Reid, verndari kokkalandsliðsins og Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra, voru viðstödd. Meistarakokkar frá Ítalíu, Spáni, Portúgal og úr íslenska kokkalandsliðinu töfruðu fram fjölda ólíkra og gómsæta rétti þar sem saltfiskur var í öndvegi.

Markmiðið með Saltfiskvikunni er að vekja athygli á þeirri sælkeraafurð sem saltfiskurinn er. Gestakokkarnir Carlota Claver frá Spáni, Diogo Rocha frá Portúgal og Lorenzo Alessio frá Ítalíu munu elda á nokkrum þeirra 13 veitingastaða sem taka þátt í Saltfiskviku.

Munu þau kynna hvernig hægt er að matreiða saltfisk hvert með sínu sniði en öll eiga þau það sameiginlegt að vera mikilsmetnir kokkar sem leggja mikla áherslu á saltfisk og koma frá löndum þar sem saltfiskurinn er í hávegum hafður.

Ítalski Michelin kokkurinn Lorenzo Alessio eldaði í gær saltfisk fyrir leikskólabörn á leikskólanum Laufásborg, þar sem börnin nutu saltfiskmáltíðar á heimsmælikvarða.

Saltfiskvika stendur til 15. september, en að henni standa; Matís, Íslandsstofa, Kokkalandsliðið og Félag íslenskra saltfiskframleiðenda.

Sjá nánar um íslenska saltfiskinn og Saltfiskvikuna á www.saltfiskvika.is.

Á myndinni gæða frú Eliza Reid og Kristján Þór Júlíusson sér á gómsætum saltfiskréttum.

 

Deila: