Ársfundur Hafró framundan
Ársfundur Hafrannsóknastofnunar verður haldinn 20. september 2019 í Hörpu milli kl. 14 og 16. Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra opnar fundinn. Ávarp flytur Sigurður Guðjónsson forstjóri og þrír sérfræðingar hjá Hafrannsóknastofnun flytja erindi.
- Breytilegt umhverfi – súrnun sjávar: Sólveig Ólafsdóttir.
- Umhverfisbreytingar og breytt útbreiðsla uppsjávarfiskistofna: Þorsteinn Sigurðsson.
- Er kynhlutleysi kostur? Genaþöggun í laxeldi: Ragnar Jóhannsson.
Kaffi og umræður.